:: keipdúnkur atla bollasonar :: | |
| :: velkomin :: bollason[hja]gmail.com :: plotusafn :: | |
|
:: laugardagur, apríl 18, 2009 :: Bloggið mitt var miklu skemmtilegra í denn.:: þriðjudagur, apríl 14, 2009 :: :: miðvikudagur, apríl 08, 2009 :: Mikið er nú gott að þessi 30 milljón króna styrkur FL til XD sé kominn upp á borð. Nú ættu allir heilvita menn að sjá svart á hvítu spillinguna sem grasserar í Sjálfstæðisflokknum. Nú eru allir kjósendur þessa flokks orðnir opinberlega heimskir. Bítlakatalógurinn kemur loksins út remasteraður níunda september nk. Enn sem komið er hefur þó bara verið boðuð útgáfa á geisladiski. Ég treysti því að það komi eitthvað snyrtilegt vínylbox fyrir okkur perrana líka.:: fimmtudagur, febrúar 12, 2009 :: Ótrúlegt en satt. Ég er búinn að uppfæra plötusafnsskjalið. Þetta er í grunninn excel skjal sem ég hef nú þýtt yfir á html þótt það hafi kostað svolitla handavinnu. Þetta á að vera listi yfir þær opinberu tónlistarútgáfur sem ég á til efnislega (þ.e. geisladiskar og vínylplötur, en ekki promo eða skrifaðir diskar og náttúrulega ekki mp3 skjöl eða slíkt). Hins vegar eru ábyggilega göt og ég veit að það vantar ca. hillumetra af vínyl, auk þess sem skráning fjöldamargra titla er nokkuð ófullkomin (vantar útgefanda eða útgáfuár). En það er samt gaman að grufla í þessu. Og gott að eiga ef húsið brennur og músíkin með - þetta er nefnilega orðið helvíti verðmætt.:: þriðjudagur, febrúar 10, 2009 :: "THE DRIVE":: miðvikudagur, febrúar 04, 2009 :: Það eina sem er meira bull en póstmódernismi er allt tal um að póstmódernismi sé óskiljanleg uppfinning menntamanna. Þar fór það.:: þriðjudagur, febrúar 03, 2009 :: :: mánudagur, febrúar 02, 2009 :: Aeroplane: Snilld.:: fimmtudagur, janúar 29, 2009 :: Ég hugsa að ég hati íhaldssemi mest af öllu.:: miðvikudagur, janúar 28, 2009 :: Sá fimm myndir á franskri kvikmyndahátíð og get með góðri samvizku mælt með fjórum þeirra. Ég er mjög veikur fyrir myndum um ævi sárkvalinna listamanna og þess vegna hitti Sagan (um ævi Françoise Sagan) mig í hjartastað, en þar tel ég að sé unninn mikill leiksigur hjá aðalleikkonunni Sylvie Testud. Quebecska myndin C.R.A.Z.Y. var bráðskemmtileg einnig; óvenju sterkt teik á að koma út úr skápnum og ekki spilla skemmtilegar períódupælingar fyrir. Entre les Murs var hreinræktuð raunsæismynd um kennarastarfið og nýtt Frakkland, Frakkland sem á eftirlendum sínum skuld að gjalda. Óvenjulegt að sjá svona lítið dramatíseraða mynd. Svo var það söngleikurinn Chansons d'Amour sem var skemmtilegur; hálfgerður andsöngleikur í því að söngsenur eru yfirleitt með einum eða tveimur í ramma, lögin eru útsett fyrir lítið rokkband, melódíur ekki lykilatriði o.fl. Flottur leikhópur og rótleysi í kynferðismálum alltaf skemmtilegt tema. Au revoir.:: sunnudagur, janúar 25, 2009 :: Þegar Gil Scott-Heron segir „the revolution will not be televised“ á hann ekki bókstaflega við að byltingunni verði ekki sjónvarpað - þ.e. send út í sjónvarpi. Við nána skoðun á kvæðinu kemur þetta í ljós. Það sem hann á við er að byltingin kemst ekki fyrir í formgerð sjónvarpsins og henni verður ekki þröngvað inn í hana. Enda bera lokalínurnar það með sér - „the revolution will be live“ merkir að hún brjóti af sér hlekki formgerðarinnar; en ekki að hún verði ekki (líka) á skjánum. Formgerð sjónvarpsins er nefnilega formgerð markaðarins; eða öfugt.:: fimmtudagur, janúar 22, 2009 :: Af mbl.is::: miðvikudagur, janúar 21, 2009 ::Stefán segir það alveg ljóst að stigbreyting hafi orðið á mótmælunum þessa nótt. Þarna hafi farið fremstir í flokki margir góðkunningja lögreglu sem komið hafa við sögu í fíkniefnamálum, innbrotum og þjófnaði. „Það er alveg augljóst að það eru aðrar hvatir sem liggja þarna að baki og við skynjum það alveg skýrt. Þarna var hópur ofbeldisseggja sem í raun og veru tók yfir mótmælin og notaði þetta tækifæri til að finna reiði sinni og gremju í garð lögreglu farveg. Það má heldur ekki gleyma því að í hópi mótmælenda var fólk sem var löngu búið að ofbjóða þessi framganga ofbeldisseggjanna og kom lögreglunni til stuðnings með því að standa með þeim og ganga síðan um á meðal hópsins sem kastaði grjóti og hvetja menn til að láta af þessu.“Semsagt, ekki mótmælendur. Leyfum íhaldsmönnum ekki að komast upp með að klína ofbeldinu á okkur hin. „Við höfum séð ákveðin mótmæli með skýr skilaboð undanfarna laugardaga og maður skilur þau mótmæli“, segir Þorgerður Katrín. En hvað er það sem hún skilur svona vel? Augljóslega ekki það að hún eigi að koma sér í burtu.:: þriðjudagur, janúar 20, 2009 :: Eitthvað segir mér að þetta sé bara byrjunin.
|
|
|
:: gestir ::
|
|